Færsluflokkur: Menning og listir

Dæmi um frábærar viðtökur við Yfirvofandi

"Þessi sýning þarf ekki að hrópa. Hún er hrein og tær og dregur mann til sín eins og segull.

Ég sá sýninguna í dag ásamt um 20 öðrum áhorfendum og það var mögnuð og falleg upplifun. Verkið sver sig í ætt við Pinter, ef maður vill endilega setja á það merkimiða, sem er reyndar óþarft. Það stendur fyllilega undir sér sjálft. Þeir sem sáu leikrit Sigtryggs, Herjólfur er hættur að elska, hér um árið, vita hvað ég er að tala um. Yfirvofandi er enginn eftirbátur fyrirrennara síns.

Það er ómótstæðilegt að setjast til stofu, og það í bókstaflegri merkingu, og fylgjast með listilegri frammistöðu eðalleikaranna Ingvars E. Sigurðssonar og Eddu Arnljótsdóttur, í slíku návígi að hver andardráttur, hvert tár sem hvílir á barmi auga er þrungið. Þá stígur einnig fram ungur leikari, Jörundur Ragnarsson, sem stendur reyndu leikurunum algjörlega jafnfætis með sterkri nærveru og fallega tilfinningu fyrir hverju smáatriði í sinni persónu. Maður hreinlega trúir að hann sé skilgetið afkvæmi Ingvars og Eddu - leikaranna. Svo þroskuð er frammistaða hans."

Viðar Eggertsson á eggmann.blog.is 

 

"Þetta er átakanlegt efni sem auðvelt er að gera væmið og óþolandi tilfinningasamt. Það gerist ekki hér. Sigtryggur heldur fast utan um það og leyfir því aldrei að renna úr greipum sér, og hann fær dygga aðstoð leikara og leikstjóra við það. Ingvar, Edda og Jörundur lifa efnið fremur en að þau leiki það, eða svo er að sjá. Maður grætur ekki yfir þjáningu þessa fólks heldur kvelst hægum kvölum milli þess sem maður hrekkur í kút undan svipuhöggum textans. Fegurð hans og þróttur kemur þeim ekki á óvart sem sá eða las fyrra leikrit Sigtryggs, Herjólfur er hættur að elska sem var sett upp á vegum Þjóðleikhússins vorið 2003. Þar var þjáningin líka viðfangsefnið - ástin, dauðinn og sektin, eins og hér."

Silja Aðalsteinsdóttir á www.tmm.is 

 

"Ástin og dauðinn eru Sigtryggi Magnasyni hugleikin viðfangsefni. Nafnlausu hjónin í þessu verki hans eru rígbundin, ofurseld harmi, glæp úr fortíðinni, sem hindrar þau í að skilja, og tala saman. Hjónabandið er dautt. Dauðinn umlykur það einnig í líki sögumanns, sonar. Hann dýpkar samtalið, skýrir það stundum eða flækir og leiðir það áfram til afhjúpunar og hins óhjákvæmilega endis. Fallega ljóðrænn er texti þessarar vel smíðuðu fléttu, fínleg írónía skýtur oft upp kollinum og knöpp samtöl eru lifandi.

Edda Arnljótsdóttir og Ingvar Sigurðsson leika hin umkomulausu hjón. Þau hafa, þykir manni, setið lengi, jafnvel áratugum saman í þessum sófa, og hreyfa sig í þröngri stofunni, húsinu, af eðlilegu öryggi þess sem þekkir hvern krók og kima. Samband þeirra eða sambandsleysi er þrungið því ósagða og ósegjanlega. Nærvera Ingvars er eins og allajafna ótrúlega sterk. Edda, sem konan er gert hefur "eymdina" að eina valkostinum, er þó ennþá betri. Henni, sem hefur svo einstaka tilfinningu fyrir húmor, tekst auðveldlega að láta íróníu textans lifna við.


...

Á tímum þegar leikritun stendur nokkuð höllum fæti í evrópsku leikhúsi er gaman að ganga til stofu skálds og hlusta á heillandi texta sem gerir kröfur til leikara."

María Kristjánsdóttir í Morgunblaðinu 

 

„Undarlega fallegt og heillandi...“

„... sérstaklega fallegt látleysi í leiknum hjá Jörundi“

Þorgerður E. Sigurðardóttir, Víðsjá.

 


Aukasýningar á miðvikudag og fimmtudag

Það verður víst að skella á aukasýningum:

Miðvikudagur kl. 19 - örfá sæti laus

Miðvikudagur kl. 21 - örfá sæti laus

Fimmtudagur kl. 19 - 12 sæti laus

Fimmtudagur kl. 21 - örfá sæti laus

 

Hægt er að panta miða á naiv@internet.is eða 661 3311. 


Uppselt. Uppselt.

Þá er orðið uppselt á sýningar helgarinnar sem voru þær síðustu sem ráðgerðar voru í sumar. Vegna áhuga þá stefnum við á að hafa þrjár sýningar á fimmtudag og föstudag í næstu viku. Þeir sem hafa áhuga geta sent tölvupóst á naiv@internet.is og fylgst með hér á blogginu.

U. Tja. Bara tveir miðar eftir...

Laugardagur kl. 17 - uppselt

Sunnudagur kl. 17 - uppselt

Laugardagur kl. 19 - 2 sæti laus

 

Hafið samband með því að skrifa til naiv@internet.is eða hringja í 661 3311.


Þá er þetta nánast búið í bili

Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér miða á Yfirvofandi um helgina. Einungis eru 8 miðar lausir á sunnudagssýningarnar.

Hafið endilega samband í síma 661 3311 eða það sem er enn betra: hafið samband með því að skrifa bréf til naiv@internet.is. 


Örfá sæti laus

Nýjustu tölur:

Laugardagur 9. júní kl. 17 - 4 miðar lausir

Sunnudagur 10. júní kl. 17 - 11 miðar lausir

Sunnudagur 10. júní kl. 19 - 6 miðar lausir

 

naiv@internet.is 

661 3311 


Í skýjunum

Við erum auðvitað í skýjunum yfir frábærum móttökum. Ég minni á að sala á sýningarnar þrjár helgina 9. til 10. júní stendur yfir. Það er um að gera að tryggja sér miða sem fyrst. Þið getið haft samband í tölvupósti naiv@internet.is og í síma 661 3311.

En nýjustu tölur eru:

Laugardagur 9. júní kl. 17 - 11 miðar lausir

Sunnudagur 10. júní kl. 17 - 13 miðar lausir

Sunnudagur 10. júní kl. 19 - 9 miðar lausir

 


Ástin og dauðinn

María Kristjánsdóttir skrifar krítík um Yfirvofandi í Morgunblaðinu í dag. Hún er hér:

YFIRVOFANDI HUN

Á ÞESSUM vetri höfum við séð leiklist í tjaldi, reiðhöll, varðskipi og nú er röðin komin að heimahúsi.
Þetta er hús númer fimm við Lokastíg, þá fallegu götu í hjarta Reykjavíkur. Útidyrnar eru opnar og liggur beinast við að ganga upp sveigðan stiga, upp á aðra hæð. Á skörinni er höfundurinn sem býður gestinn velkominn í hús, maður hengir af sér og gengur inn í hvíta, þrönga stofu og sest þar á stól hjá tuttugu öðrum. Horft er inn í tvö önnur herbergi, bókaherbergi með sófa og litlu skrifborði, og þaðan inn í borðstofu, í stofunni hjá okkur til hliðar er píanó. Í þessari leikmynd og rýmum sem ekki eru sjáanleg, úti á svölum og gangi, uppi á lofti, er leikið.

Ástin og dauðinn eru Sigtryggi Magnasyni hugleikin viðfangsefni. Nafnlausu hjónin í þessu verki hans eru rígbundin, ofurseld harmi, glæp úr fortíðinni, sem hindrar þau í að skilja, og tala saman. Hjónabandið er dautt. Dauðinn umlykur það einnig í líki sögumanns, sonar. Hann dýpkar samtalið, skýrir það stundum eða flækir og leiðir það áfram til afhjúpunar og hins óhjákvæmilega endis. Fallega ljóðrænn er texti þessarar vel smíðuðu fléttu, fínleg írónía skýtur oft upp kollinum og knöpp samtöl eru lifandi.

Edda Arnljótsdóttir og Ingvar Sigurðsson leika hin umkomulausu hjón. Þau hafa, þykir manni, setið lengi, jafnvel áratugum saman í þessum sófa, og hreyfa sig í þröngri stofunni, húsinu, af eðlilegu öryggi þess sem þekkir hvern krók og kima. Samband þeirra eða sambandsleysi er þrungið því ósagða og ósegjanlega. Nærvera Ingvars er eins og allajafna ótrúlega sterk. Edda, sem konan er gert hefur "eymdina" að eina valkostinum, er þó ennþá betri. Henni, sem hefur svo einstaka tilfinningu fyrir húmor, tekst auðveldlega að láta íróníu textans lifna við.

Bergur Þór Ingólfsson staðsetur leikarana ákaflega vel og fallega í rýminu, húsinu. Hann kýs að leggja áherslu á hið ungæðislega í fari sögumannsins, sem leikinn er af Jörundi Ragnarssyni, og tengir sögumann skemmtilega samtali hjóna. Jörundur er efnilegur ungur leikari en á stundum verður þó leikur hans fullleiksviðslegur fyrir stofuna og víða hefði mátt vinna með honum meiri blæbrigði í texta.

Á tímum þegar leikritun stendur nokkuð höllum fæti í evrópsku leikhúsi er gaman að ganga til stofu skálds og hlusta á heillandi texta sem gerir kröfur til leikara.

Þess má geta að á frumsýningardag kom "Yfirvofandi" út á bók og einnig ensk þýðing verksins. Bókin er einstaklega vel uppsett, í fallegu svörtu bandi og gott að hafa hana í hendi.

María Kristjánsdóttir


„Maður grætur ekki yfir þjáningu þessa fólks heldur kvelst hægum kvölum“

Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri Tímarits Máls og menningar og margt fleira, skrifar um Yfirvofandi á síðu TMM. Hún segir meðal annars:

„Ingvar, Edda og Jörundur lifa efnið fremur en að þau leiki það, eða svo er að sjá. Maður grætur ekki yfir þjáningu þessa fólks heldur kvelst hægum kvölum milli þess sem maður hrekkur í kút undan svipuhöggum textans.“

Meira má sjá hér.
Takk Silja.



treiler #2


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband