Hvar ertu Pamela?

Við fréttir sem þessar af Bryndísi okkar Odds þá verður mannig með söknuði og hlýju hugsað til Pamelu Anderson sem snemma á tíunda áratugi síðustu aldar túlkaði hinn djarfa strandvörð C.J. Parker í þáttunum Baywatch. Rifja af þessu tilefni upp sonnettu frá því snemma á skáldferli mínum.

Sonnetta af CJ fögru

Ó CJ jómfrú jarðar gullnu sanda
með jákvætt bros og ennismána blíðu.
Úr sólargeislum sauma klæðin fríðu
þeir sunnanvindar Kalifornístranda.

Nú andar norðrið napra vindum svölum.
Mig nístir kuldinn, frystir mínar kinnar,
þá hugsa ég til yls og ástar þinnar
ó elsku CJ (lyf við mínum kvölum).

Þótt illur hafís þeki þorskagrundir
og þrælsins myrkur loki mínum augum
ég sé í fjarska glampa af geislabaugum
og get mér til þú bíðir mín þar undir.

Ó drenginn litla sæktu CJ bjarta,
ó segðu að þú þiggir kalið hjarta.


mbl.is Britney að gifta sig?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Gunnarsson

Meistaraverk!

Ívar Gunnarsson, 14.1.2008 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband